crashið mitt
Hjólasíður
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 janúar
23.06.2007 03:20:55 / pgm

Muna að kvitta í dagbókina!!!!!!

Ég bara neita að trúa því að það séu bara mamma og Margrét sem eru búnar að heimsækja þessa síðu s.l. tvo mánuði...hlýtur einhver annar að hafa komið...hmmm...nema ég sé bara svona hrikalega sorglegur gaur...

 

...KOMA SVO...KVITTA...JÁ JÁ!!!  hehehe 


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.06.2007 10:53:03 / pgm

Ísafjörður, WOOHOO!!!

Jæja, þá er að halda áfram með það sem á daga mína hefur drifið undanfarið.  Fór á Ísafjörð með familíunni um daginn til að fara í fermingar veislu, allt gott og blessað með það... Leigðum hús í Hnífsdal á snjóflóða hættu svæði, helvíti ljúft að vera þar nema hvað rúmið sem maður svaf í var ekki það besta í heiminum:S  Allavegana þá skelltum við okkur út á lífið á laugardags kvöldinu á lítinn bar sem heitir Langi Mangi...  Bara gaman, náðum okkur í borð úti í horni og sátum þar að sumbli til klukkan 3 um nóttina.  Það var local hljómsveit að spila og við sungum og trölluðum með öllum lögunum...  Bara gaman!!!  Fólk var farið að koma í hornið til að skoða klikkuðu Reykvíkingana:D  Þetta endaði svo með því að Torfi ældi á leiðinni aftur í Hnífsdal og enn og aftur þegar þangað var komið:P  Vöknuðum svo um morguninn og fórum í veisluna (allir misvel á sig komnir eftir kvöldið) Ætluðum svo að fara heim eftir það og komumst þá að því að það væri allt lokað á leiðinni í bæinn...  Þá var stefnan aftur tekin á Langa Manga...  Náðum núna í borð hjá hljómsveitinni.  Eigandinn á barnum kom og spurði okkur hvort það hefðu ekki verið við sem vorum þarna kvöldið áður og sagði okkur að það hefði verið leiðinlegt að við hefðum verið í horninu.  Þarna sátum við og sungum, görguðum og góluðum og börðum í borðin (hissa á að það skyldi ekki brotna í öllum látunum) báðum um óskalög og þar fram eftir götunum, það verður talað um okkur á Ísafirði næstu árin!!!!:haha:  Vaknaði um morguninn með nýtt evrópumet í þynnku og allveg raddlaus, gat varla komið upp orði:S  Svo var stefnan tekin á bæinn...  Var síðan ein afmælisveisla í gær og önnur í kvöld...  Shit hvað það á eftir að vera gaman hjá okkur systkynunum:haha:  Skrifa um það á morgun, ef þynnkan leyfir:)

Seeya8) 


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.05.2007 12:03:52 / pgm

Hjólið komið á götuna

Jæja góðir hálsar, ég fékk símhringingu áðan frá einu stykki araba sem tilkynnti mér það að hann hafi verið að kaupa hjólið mitt á uppboði og var að athuga hvort ég ætti pústið ennþá...  Lét hann að sjálfsögðu fá það.  Hann keypti hjólið víst á 158.000 kall og hann og mágur hans ætla að gera það upp og koma því aftur á götuna!!!  Ekki það að það sé ekki bara flott mál, ekki eins árs gamalt hjól á skilið að fá að hjóla aðeins meira en það er búið að gera, ég náði ekki að hjóla nema 11.000 km síðasta sumar:lol:  En nóg um það, ég byrjaði í sjúkraþjálfun á mánudaginn, frekar vont skal ég segja ykkur...  hún segir að það sé samvinna hjá járnplötunum og örunum sem gerir það að verkum að ég get varla hreyft hendina á mér, örin eru svo stíf að þau gefa ekkert eftir þegar maður reynir að snúa hendinni, hún ætlar líka að tala við lækninn og sjá hvort hann ætli ekki að taka teininn sem er inni í beininu, hann er víst eitthvað fyrir:(  Fékk líka reikning fyrir 2 endurkomum á spítalann...  23.000 kall takk fyrir... og á eftir að fá meira.  Ekki það að það skipti mig máli þarf ekki að borga þetta sjálfur:P  Jæja, nóg komið í bili... ætla að skella mér í play station, seeya:D

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 16:06:59 / pgm

Síðasta gipsið farið

Jæja góðir hálsar, síðasta gipsið fór af í dag.  Hægri hendin loksins frjáls líka:D  Mér dauð brá samt þegar gipsið var tekið af, hendin er allveg ramm skökk...  Hallar öll í áttina að þumlinum8|  Frekar creepy sko:S  Fékk líka orlofið mitt borgað í gær, og svo útborgað frá tryggingunum (loksins) og kallinn skellti sér uppí Lúr og splæsti á okkur nýju rúmi:D  183x213 cm, ójá8)  Verður keyrt heim klukkan 19:00 í kvöld, Torfi ætlar að koma og hjálpa mér með það upp... þ.e.a.s. að halda á því upp með bílstjóranum:haha:  Því þótt maður sé laus úr gipsi þá má maður ekki reyna mikið á hendurnar nærri strax:|  Fór líka áðan og hitti sjúkra þjálfarann minn, á tíma þar á mánudaginn klukkan 14:00.  Jóhann læknir ætlar líka að redda baksérfræðingi til að kíkja á bakið á mér, búinn að vera að bíða eftir honum síðan ég var á sjúkrahúsinu.  Þá sagði hjúkka mér að það væri sérfræðingur væntanlegur eftir helgi að kíkja á mig... hef ekki séð hann ennþá:S  Ætli hann hafi ekki bara gleymt mér...  Verð allavegana að fara að komast í einhverja þjálfun með bakið á mér, er ekki hægt að ég er gersamlega að drepast á hverjum einasta morgni þegar ég vakna og ef ég er búinn að vera að labba mikið eða bara standa:|  Jæja, hef ekkert meira að segja í bili.  Bæjó:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 14:30:26 / pgm

Talaði við lögfræðinginn

Ég náði loksins tali af lögfræðingnum mínum í dag:)  Hún hafði samband við sjóvá og þeir ætla að borga hjólið mitt út á morgun eða hinn:D  Fór líka með gallann til þeirra og þeir ætla að láta einhvern sérfræðing hjá sér skoða gallann og verðleggja hann... ætti að fá hann líka borgaðann á morgun eða hinn daginn:)  Sætti mig ekki við að fá krónu minna en 140 þúsund kall fyrir hann, það á eftir að vera eitthvað ströggl eins og allir vita sem hafa einhverntíma þurft að díla við trygginga félag, þeir reyna alltaf að borga manni sem minnst fyrir allt:S Var samt bara fyndið þegar ég fór í upplýsingarnar hjá Sjóvá og sýndi konunni hjálminn og spurði hvert ég ætti að fara með hann þá spurði hún hvort þetta væri eftir tjón... ég bara horfði á hana eins og hún væri vangefin og sagði ,,já, augljóslega" þetta eru mongoar:haha:  Meira seinna

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 13:18:21 / pgm

Fórum í bíó í gær

Fórum í bíó í gær með Margréti og David.  Frekar fyndið sko, var með löppina uppá sætinu fyrir framan mig því ég náttúrulega get ekki beygt hana nema 20 gráður g viti menn, salurinn var svo gott sem tómur og auðvitað vildi einhver setjast í sætið sem löppin mín var uppá, og þá kom Margrét að sjálfsögðu to the rescue, hehe thanx:haha:  En annars var myndin ,,the messengers" ekkert voða spes, illa leikin og mjög fyrirsjáanleg.  Mér brá nú samt nokkuð hressilega nokkru sinnum, enda er ég svo mikil kona þegar kemur að draugamyndum8|  Komum svo bara hérna heim, fengum okkur smá rauðvín og spiluðum rommý og trivial pursuit... ég að sjálfsögðu vann það:haha:  Er svo gáfaður, hehe8) jæja, ekkert meira að gerast í bili, ætla að hoppa (HA, þessi var góður) í Bónus.  Heyrumst seinna, bæjó;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 11:53:27 / pgm

Nýjar myndir á myspace

Búinn að setja inn fullt af nýjum myndum á myspace, röntgen myndir og myndir af kettinum:haha:  Ætlaði að fara og tala við lögfræðinginn í dag, en viti menn hún var ekki við eins og aldrei áður:S  Hún er víst að klára að taka hdl. réttindin sín.  Verður ekkert við fyrr en á mánudaginn.  Fæ að vita meira þá.  Allavegana, ekkert meira að bulla í bili, seeya:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 20:04:42 / pgm

Woohoo, laus við fótagipsið

Ég losnaði við gipsið af löppinni í dag og fékk spelku í staðinn:haha: Kominn með svona robo-löpp, hehe8) Djöfulsins andstyggðar fnykur gaus upp þegar það var tekið... og löppin var öll brún og ógeðsleg.  Fékk spritt í svamp til að þrífa hana, hann var orðinn brúnn og stapp fullur af hárum eftir tvær strokur:S  Losnaði líka við stóra gipsið af vinstri hendinni, fékk svona uppklippt gips í staðinn.  Get tekið það af til að þvo mér og svoleiðis, og líka til að æfa upp hreyfigetu í úlnliðnum, snúa upp á hendina og svona8)  Fór líka í bað áðan í fyrsta skipti í sléttan mánuð8|  Shit hvað það var ljúft:!::!:  Vatnið var líka ógeðslegt á eftir, allveg drullu og húðfitu skán í baðkerinu á eftir:|  Ekki það ég er allveg búinn að þvo mér sko, en bara svona hóruböð... þvottapoki til að fjarlægja mesta skítinn og verstu lyktina:lol:  Er allavegana fresh and clean núna, Ójá:!:  Er samt enn að bíða eftir að heyra í lögfræðingnum mínum með þetta bull að ég sé í 25% órétti, sætti mig sko ekki við það:!:  Reyna hvað maður getur til að fá því hnekkt:)  Jæja, held örugglega að það séu engar fleiri nýjar fréttir í bili.  Þangað til næst... Bæbæ:haha:


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 09:53:35 / pgm

Munið gestabókina

Endilega munið að kvitta í gestabókina þegar þið kíkið hérna inn... veit það nennir því enginn, en þá hef ég eitthvað að lesa þegar ég sit heima að bora í nefið.  Kominn með nóg af því í bili að horfa á DVD.  Búinn að vera að skoða tattoo á netinu til að covera örin á úlnliðnum, er að pæla í svona hot-rod flames hringinn á fram handleggnum, helvíti flott:D  Hef bara ekki efni á því strax:cry:  Svo verð ég líka að fara að kaupa mér nýtt rúm (eða við réttara sagt):)  Rúmið mitt er handónýtt, ætlaði aldrei að komast framúr í morgun.  Bakið var bara í rúst eftir nóttina:cry:  Sá geggjað rúm í búð sem heitir Lúr í kópavoginum, það er 193cm x 203cm.  Bara gott að liggja í því og maður finnur ekkert fyrir hreyfingunum hjá hinum aðilanum þegar maður liggur í því og hún hossar sér8)  Bara næssssh!!:haha:  Jæja, stapp fyllti mig af verkjalyfjum áðan og þau eru farin að kikka, þá borgar sig að reyna að gera eitthvað, taka til eða eitthvað.  Þangað til næst, see ya:haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 16:46:56 / pgm

Dagarnir eftir aðgerðina

Dagarnir eftir aðgerðina fóru að mestu leyti í það að horfa á þætti í tölvunni, gala á meiri verkjalyf, fyrst morfín í æð og síðan alls konar lyfjakokteila ýmist töflur eða í æð eða bæði:lol: Var pínulítið utan við mig fyrstu 3 dagana lá bara og bullaði og svitnaði (shiet ég var farinn að lykta hrikalega illa:^) ) Svo á 4 degi var þvagleggurinn fjarlægður, það var EKKI gott skal ég segja ykkur:cry:  Fór líka þá að skíta í fyrsta skipti í 4 daga og oh my god stærðin og þykktin hlýtur að hafa slegið ólympíu met!!!:haha:  Bara vont!! En næsshh eftirá:lol:  Svo byrjaði maður að rölta um gangana þegar þvag leggurinn var farinn, var eins og gamall kall í göngugrind og alles8|  Svo var manni hent heim á 7 degi og Anna tók við að hjúkra manni (skeina og svona) frekar neyðarlegt sko:(  En nú er maður allur að koma til, farinn að snúa uppá vinstri hendina og nota hina allveg helling.  Losna við gipsið á vinstri þann 10. mai og fæ gips á hina sem hægt er að taka af til að þvo sér og svona:D  Fer svo 2 maí og hitti lappa lækninn og fæ að vita hjá honum hvort ég fái ekki spelku í staðinn fyrir gipsið8)

PS: Langar að þakka öllum fyrir sem hafa sýnt manni stuðning og öllum þeim sem komu að heimsækja mig á spítalann:) Sérstakar þakkir fá systkyni mín, mamma gamla og annafyrir allt sem þau eru búin að gera fyrir mig, love ya:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 21:44:49 / pgm

Komin með Kisu

 

Fórum í dag og fengum okkur kettling,lítill og grár bara sætur fress. Set mynd af honum hér líka. Nú þarf mér ekki að leiðast einum heima lengur hahahahaha :D Er að fara til læknis á morgun í röntgen og umbúðaskiptum á höndum, en meira um það á morgun. Bara að segja frá kisuni núna ;) ps.Setti fleiri myndir inná líka


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 11:06:16 / pgm

Aðgerðin

Þegar ómuninni var lokið og búið að setja bráðabirgðar spelkur á hendurnar mínar var mér rúllað niður á bæklunardeild A-5.  Beið þar í einhverja 4 tíma eftir lækninum sem útskýrði fyrir mér að það þyrfti að skera á mér hendurnar og löppina, man lítið eftir því sökum morfín móks:$  Svo var mér trillað á skurðstofu og ég svæfður, 5 tímum seinna vakna ég með báðar hendur í gipsi og aðra löppina frá ökkla og upp að mjöðm og kvalinn frá helvíti:^)  Gala á hjúkkuna og bið um morfín... hálftíma síðar kemur hún til baka með pillur og eitthvað hvítt jukk í sprautu og segist ekki geta gefið mér meira morfín því lifrin höndli það ekki (bull hugsa ég, lifrin mín höndlar endalaust dóp!!!) en þetta sló mig út engu að síður.  Um morguninn kom doktorinn og útskýrði að hann hafi bara þurft að skera aðra hendina og setja í hana tvær járnplötur, 8 skrúfur og járntein því beinin hafi bara verið í dufti.  Löppin var líka skorin og liðband saumað niður:$  Læknirinn sem gerði það var ekki jafn almennilegur og sagði mér þegar ég bað um að fá að fara að reykja (í lyfjamóki, hefði aldrei geta farið út að reykja) að svona færi bara fyrir þeim sem keyra of hratt!!!  Shitt hvað ég ætla að kæra hann til landlæknis!!!!  Læknar eiga ekki að segja svona!!!  Ég var ekkert að keyra hratt!!!  Meira seinna... Verkjalyf núna og beddinn:^):^)

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 20:19:26 / pgm

Leiðin á sjúkrahúsið

þegar sjúkrabíllinn kom, byrjuðu sjúkraliðarnir að hlúa að mér, og spurðu hvar mér væri mest illt. Skoðuðu hálsinn, tóku af mér hjálminn og skelltu mér á börur og inní bíl. Áleiðinni á borgarspítalann vsr ég spurður að allskonar stupid spurningum eins og hvort ég fyndi fyrir hringvöðvanum... hvað er málið með það???:S  Svo var mér rúllað inná slysó þar sem hópur af gargandi læknum tók á móti mér og klippti af mér gallann, dældi mig fullan af morfíni og skellti mér í hjartalínurit.  Svo kemur annar læknir hlaupandi, hendir frá sér jakka sest við hliðina á mér og skipar hjúkkunni að gefa mér meira morfín.  Hann segir mér svo að slaka á því úlnliðurinn sé úr lið og hendin hvít og enginn púls í henni og svo sátu þeir tveir sitthvoru megin við börurnar og toguðu mig í lið!!!! SHIT ÞAÐ VAR VONT!!!!:!::!: Svo var bakið aðeins yfirfarið, höndunum skellt í spelkur og mér trillað í röntgen... þaðan var ég svo sendur aftur niður í segulómun þaðan sem ég var sendur aftur á slysó því þeir gleymdu að taka úr mér lokkana!!! Hálfvitar, bað um meira morfín áður en ég fór aftur upp, fékk það8)8) Það þurfti að fá lækni til að halda mölbrotnum höndunum mínum fyrir ofan haus meðan verið var að skanna mig... Þegar þessu lauk fékk é enn meira morfín og mér sagt að ég þyrfti í aðgerð bæði á höndum og fótum... Meira um það á morgun, leggjast núna og éta verkjalyf... Þangað til næst...

» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 14:02:47 / pgm

Árekstur á Réttarholtsvegi

Þessi síða er ætluð til að miðla upplýsingum um mótorhjólaslysið sem ég lenti í þann skírdag 2007.  Var á leiðinni á Selfoss að fá mér ís ásamt bróðir mínum í blíðskapa veðri... rétt kominn út af planinu þegar gamall kall (fæddur 1926) "sér mig ekki" og beygir í veg fyrir mig!!! Lendi beint framan á honum með ægilegum hvelli og við það mölbrotna báðir úlnliðirnir á mér, flýg svo ca 8 metra og lendi á hausnum á graseyju (sem betur fer) ber þar fyrir mig vinstri hendina sem brotnar þá meira, heyri líka og finn þegar bakið á mér brotnar:cry: Ligg þar í ca 15 sek þegar kona kemur hlaupandi gargandi "guð minn góður ertu lifandi"!!!! ég sem varla gat andað útaf bakinu og var viss um að þarna myndi ég drepast spyr hvort það hafi verið gamall kall á bílnum:S Hún játaði því og sagði mér að hreyfa mig ekki því sjúkrabíllinn væri á leiðinni, svo hringdi´hún í múttu gömlu sem kom askvaðandi í taugaáfalli ásamt öllum syskinum mínum á slysstað og uppá spítala... meira síðar, verð að bryðja verkjalyf og leggjast niður:^)

» 3 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
Dagar s�?�?�?­�?�?�?°an �?�?�?©g krassa�?�?�?°i
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 734541 dögum
RSS tengill